48
Teriyaki núðlur
1.077 kr
Innihaldslýsing
- 1 pk Núðlur
- 2 msk Matarolía 1L
- 1 pk Frosið grænmeti
- 1 krukka Teriyaki sósa
Leiðbeiningar
- Hitið vatn í potti upp að suðu og sjóðið núðlur samkvæmt leiðbeiningum á pakka
- Sigtið og hreinsið, ef þarf
- Á meðan núðlurnar sjóða, hitið pönnu á miðlungshita með smá olíu
- Steikið frosið grænmeti þar til það hefur mýkst og er orðið þiðið í gegn
- Bætið núðlunum út á pönnuna ásamt helmingnum af teriyaki sósunni og blandið vel
- Steikið í um eina mínútu, bætið við teriyaki sósu ef þið viljið hafa núðlurnar sósumiklar
- Takið pönnuna af hitanum og berið fram
Til minnis – viðbótarupplýsingar
Einnig má bæta við sesamolíu (1 tsk) í lokin, rétt áður en rétturinn er borinn fram og skreyta með sesamfræjum.