BLT SAMLOKUR

by birgitta

BLT Samlokur

923 kr
Undirbúningur 15 mínútur
Eldunartími 15 mínútur
Heildartími 30 mínútur
Tegund Hádegismatur, Kvöldmatur
Þema Amerískt
Skammtar 4 manns

Innihaldslýsing
  

  • 0,5 pk Beikon (klippt í tvennt)
  • 12 sneiðar Brauð 1kg
  • 1 pk Iceberg
  • 3 stk Tómatur
  • 160 ml Mayonnaise 500ml

Leiðbeiningar
 

  • Byrjið á því að steikja beikonið á pönnu, í ofni eða í air fryer
  • Klippið sneiðarnar í tvennt til að auðveldara sé að raða saman
  • Skerið tómatana í sneiðar og rífið niður salatblöðin í hentugar stærðir (sniðugt er að raða tómatsneiðunum á eldhúspappír til að minnka vætuna og salta/pipra)
  • Ristið brauðið eða setjið inn í heitan ofn

Raðið saman samlokunum

  • Smyrjið mayonnaise á hverja brauðsneið, raðið kálblaði svo lítið standi út fyrir.
  • Raðið tómötum næst ofan á og skerið sneiðarnar í helming ef þarf til að fylla út í allsstaðar
  • Raðið beikoni ofan á tómatsneiðarnar og lokið samlokunni með annarri brauðsneið, mayonnaise-ið snýr niður.
  • Berið fram eða skerið skáhallt og berið fram BLT samlokuþríhyrninga
Banner

Fleiri hugmyndir