FISKIBOLLUR Í KARRÝ

by birgitta

Fiskibollur í bleikri eða karrý sósu

1.234 kr
Undirbúningur 5 mínútur
Eldunartími 30 mínútur
Heildartími 35 mínútur
Tegund Kvöldmatur
Skammtar 4 manns

Innihaldslýsing
  

  • 1 dós Fiskibollur í dós
  • 500 g Kartöflur kg
  • 50 g Smjör
  • 3 dl Hveiti 1kg
  • 2 dl Nýmjólk 1L
  • 10 g Tómatsósa eða Krydd karrý – eftir smekk

Leiðbeiningar
 

  • Byrjið á því að setja kartöflur í pott með vatni og sjóða
  • Því næst er útbúinn jafningur með smjöri, hveiti, vökvanum úr dósinni og með mjólkinni
  • Þegar jafningurinn er tilbúinn er bragðbætt með tómatsósu/Karrý en passið að setja lítið í einu og smakka til
  • Þegar sósan og kartöflurnar eru tilbúnar er fiskibollunum og kartöflum í bitum, bætt út í sósuna og borið fram.

Til minnis – viðbótarupplýsingar

Sumir setja sykur út í sósuna til að gera hana sætari.
Hér má sjá hvernig jafningur er búinn til.
 

Fleiri hugmyndir