83
Kjúklinga Stir Fry
2.371 kr
Auðveldur kjúklingaréttur með kúrbíti (zucchini)
Innihaldslýsing
- 700 g Kjúklingabringur kg
- 1 stk Laukur
- 3 geirar Hvítlauksgeirar
- 1 msk Engifer (rifið)
- 1 tsk Chillí flögur (eða 1 ferskur, fræhreinsaður)
- 5 stk Kúrbítur (Zucchini)
- 60 ml Soja sósa Velja soja sósu sem er með minna sodium
- 1 tsk Sesamolía
- 2 msk Matarolía 1L
- 1 msk (Sesamfræ eða vorlaukur til skrauts – ekki í kostnaði)
Leiðbeiningar
- Hitið olíu á pönnu á miðlungs hita
- Kryddið kjúklinginn með salti & pipar og steikið svo í um 8 mínútur eða þar til bitarnir eru orðnir gullbrúnir
- Á meðan kjúklingurinn brúnast, er gott að skera niður grænmetið í grófa bita og rífa niður engifer
- Setjið kjúklinginn til hliðar en notið sömu pönnu áfram til að steikja lauk, hvítlauk, engifer og chillí í um 2-3 mínútur
- Bætið lárperunni (zucchini) við og steikið í 3-4 mínútur eða þar til hún mýkist aðeins
- Bætið þá kjúklingnum aftur á pönnuna og hellið soja sósunni ásamt sesam olíunni yfir, á meðan hrært ert stöðugt í réttinum
- (Skreytið með sesamfræjum eða jafnvel vorlauki)
Til minnis – viðbótarupplýsingar
Það má að sjálfsögðu bæta öðru grænmeti við eða skipta því út.