71
Súrsætt kjöt
1.551 kr
Innihaldslýsing
- 1 krukka Súrsæt sósa (Sweet & Sour sauce)
- 700 g Kjúklingabringur kg
- 300 g Hrísgrjón 1kg
- 0,5 poki Frosið grænmeti
Leiðbeiningar
- Byrjið á að setja vatn í pott og hita að suðu.
- Þegar suðan er komin upp á vatninu, eldið þá hrísgrjón eftir leiðbeiningum á pakka.
- Hitið pönnu á háan hita og setjið smá olíu á pönnuna.
- Skerið kjúklingabringur í bita og setjið á heita pönnuna.
- Þegar kjúklingurinn hefur brúnast vel, má bæta við frosnu grænmeti á pönnuna og steikja saman í nokkrar mínútur.
- Bætið næst súrsætu sósunni saman við kjúklinginn og grænmetið.
- Þegar allt hefur mallað saman í nokkra stund og hrísgrjónin soðin, má bera fram á borð.
Til minnis – viðbótarupplýsingar
Grísa- og/eða svínakjöt eða lambakjöt bragðast einnig mjög vel í þessum rétti en þá verður kostnaður á réttinum hærri. Einnig má nota kjúklingabaunir eða nýrnabaunir í stað kjötsins.