39
Fiskur í raspi með frönskum
2.405 kr
Innihaldslýsing
- 1 kg Þorskbitar í raspi
- 100 g Smjör
- 1 stk Laukur
- 1 stk Sítróna
- 1 poki Franskar (frosið)
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 200°C
- Skerið smjörið í bita og raðið í botninn á eldföstu móti
- Raðið fiskinum yfir
- Setjið smjörbita ofan á hvern bita
- Dreifið lauknum á milli bita (sumir vilja setja hann í botninn)
- Setjið í ofninn í u.þ.b. 20 mínútur
- Skerið sítrónubita og setjið ofan á hvern bita þegar þið takið úr ofninum
- Berið fram fisk í raspi með smjörsteiktum lauk og meðlæti
Til minnis – viðbótarupplýsingar
Fiskur í raspi er líka geggjað góður með smælki en franskarnar gætu höfðað meira unglinganna 😉 Hrásalat hentar líka mjög vel sem meðlæti!