GRÍSASAMLOKA / PULLED PORK

by birgitta

Grísasamloka (Pulled pork)

3.000 kr
Undirbúningur 15 mínútur
Eldunartími 8 hours
Heildartími 8 hours 15 mínútur
Tegund Kvöldmatur
Þema Amerískt
Skammtar 4 manns

Innihaldslýsing
  

  • 1,8 kg Grísabógur kg
  • 2 msk Krydd paprika
  • 1 tsk Krydd oreganó
  • 1 tsk Salt 1kg
  • 1 tsk Pipar
  • 0,5 tsk Krydd cumin
  • 1 stk Laukur
  • 4 geirar Hvítlauksgeirar
  • 1 stk Appelsína
  • 1 pk Hamborgarabrauð 4 stk
  • 0,5 stk Rauðkál ferskt
  • 250 ml Mayonnaise 500ml
  • 5-10 ml Hvítvínsedik
  • 1 stk BBQ sósa

Leiðbeiningar
 

  • Ef nota á hefðbundinn ofn, stillið hann þá á 150°C
  • Skerið lauk og hvítlaukinn í smátt, kreistið safa út appelsínunni og bætið í fatið (slow-cooker)
  • Blandið saman öllum kryddtegundum í skál
  • Skerið burt eins mikla auka fitu af kjötinu, nuddið kryddblöndunni vel á kjötið og setjið í fatið (slow-cooker)
  • Ef kjötið passar illa í fatið, þá gæti verið sniðugt að úrbeina það fyrst.
  • Stillið slow-cooker tækið ykkar á lága stillingu og eldið í 8 klukkustundir / Stillið ofninn á 150°C, setjið lok á fatið og fatið inn í ofn í 8 klukkustundir.
  • Skerið niður rauðkálið í smátt, blandið saman við mayonnaise og hvítvínsedik í skál
  • Þegar kjötið hefur verið eldað í 8 klukkustundir er gott að færa það yfir í stór eldfast mót, skurðbretti eða skál til að rífa það niður með tveimur göfflum eða sérstöku áhaldi ætlað rifnu kjöti
  • Það getur verið gott að bæta smá af vökvanum úr fatinu á rifna kjötið til að bleyta aðeins upp í því og koma í veg fyrir að það verði of þurrt.
  • Berið fram rauðkál, rifið grísakjöt og hamborgarabrauð með BBQ sósu.

Til minnis – viðbótarupplýsingar

Það er líka dásamlegt að bjóða upp á súrar gúrkur eða ferskar gúrkusneiðar með grísaborgurunum.
*það má blanda BBQ saman við allt kjötið eða leyfa hverjum og einum að setja á sinn borgara
**Frystið afganginn fyrir vefjur, borgara eða sem fyllingu í pylsubrauð