53
Grjónagrautur
509 kr
Einfaldur grjónagrautur sem tekur klukkustund að útbúa
Innihaldslýsing
- 3 dl Hrísgrjón (River Rice eða grautargrjón)
- 4 dl Vatn
- 2 L Nýmjólk 1L
- 1 tsk Salt 1kg
- 1 dl Rúsínur
- 2 tsk Kanill
- 1 dl Sykur 1kg
Leiðbeiningar
- Byrjið á að setja hrísgrjónin, saltið og vatnið í pott, hitið að suðu í nokkrar mínútur
- Lækkið hitann undir pottinum (miðlungshiti) og bætið mjólkinni saman við
- Setjið lok á pottinn og látið malla
- Hrærið reglulega í, svo það brenni ekki við
- Þegar grauturinn hefur náð þeim þykkleika sem óskað er eftir, má bera fram
Til minnis – viðbótarupplýsingar
Gott er að bæta ekki allri mjólkinni saman við strax heldur setja meirihlutann og bæta frekar við þegar grauturinn hefur eldað í um 40-50 mínútur. Sumum finnst ómissandi að bera fram lifrarpylsu með grjónagraut en lifrarpylsan hækkar matarkostnaðinn töluvert (eða næstum því um helming), þá gæti verið hentugt að skera lifrarpylsuna niður í sneiðar og ef það verður afgangur, að frysta þar til næst.