HAKK & SPAGHETTÍ

by birgitta

Hakk og spaghetti

511 kr
Mjög einfalt, en ódýrt hakk og spaghetti
Undirbúningur 2 mínútur
Eldunartími 20 mínútur
Heildartími 22 mínútur
Tegund Kvöldmatur
Þema Ítalskt
Skammtar 4 manns

Innihaldslýsing
  

  • 500 g Folaldahakk kg (eða svínahakk/grísahakk/vegan hakk)
  • 1 msk Matarolía 1L
  • 240 g Spaghetti eða annað pasta
  • 1 krukka Pastasósa krukka

Leiðbeiningar
 

  • Hitið matskeið af olíu á pönnu og steikið hakkið á miðlungshita
  • Hrærið reglulega í kjötinu svo það brúnist vel
  • Setjið pastasósu saman við og lækkið hitann örlítið
  • Látið malla í um 10 mínútur
  • Sjóðið spaghetti/pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka
  • Látið vatn renna af spaghettíinu/pastanu og deilið á milli í skálar
  • Skiptið loks kjötsósunni á milli skála (setjið afgang í box fyrir hádegismat eða í frysti)

Til minnis – viðbótarupplýsingar

Í þessari uppskrift má skipta út folaldahakki fyrir aðrar gerðir eftir smekk eða tilboðum í kjötborði. Það eru ekki allir sem leggja í folaldahakkið, þá er hægt að skipta út fyrir það sem heimilið kýs helst en grísa/Svínahakk hækkar verðið á þessum rétti um 70% og nautahakk um 100%
*Reiknað er með ca. 60g af þurru óelduðu spaghetti/pasta á mann
Sniðugt er að bjóða upp á ódýrar brauðbollur eða heimalagað hvítlauksbrauð með þessu (ristað brauð strokið með sárinu á hvítlauki og smjör/viðbit)

Fleiri hugmyndir