HEIMATILBÚIN PIZZA

by birgitta

Heimatilbúin pizza

1.463 kr
Einföld og ljúffeng uppskrift
Undirbúningur 10 mínútur
Eldunartími 15 mínútur
Hvíldartími 1 hour
Heildartími 1 hour 25 mínútur
Tegund Kvöldmatur
Þema Ítalskt
Skammtar 4 manns

Innihaldslýsing
  

  • 3,5 dl Vatn
  • 1 bréf Þurrger bréf
  • 2 tsk Sykur 1kg
  • 5 msk Matarolía 1L
  • 2 tsk Salt 1kg
  • 10 dl Hveiti 1kg
  • 0,5 stk Pizzasósa
  • 200 g Góðostur kg
  • 0,5 pk Skinka
  • 1 dós Sveppir dós
  • 1 dós Ananas dós

Leiðbeiningar
 

Pizzadeig

  • Byrjið á að hella miðlungsheitu vatni í stóra skál og dreifið þurrgerinu yfir.
  • Hrærið lítillega og látið standa þar til freyðir vel, í um 5 mínútur.
  • Hrærið þá samanvið sykri, olíu og salti.
  • Bætið hveitinu næst við og hrærið þar til deig myndast.
  • Penslið aðra skál með smá olíu, setjið deigið í hana og setjið smá olíu yfir deigið.
  • Hyljið skálina með plastfilmu og leggið til hliðar á hlýjan stað í um klukkustund.
  • Eftir að deigið hefur u.þ.b. tvöfaldað sig, færið þá yfir á hveitiborið borð og varlega hnoðið 1-2var sinnum og útbúið kúlu.
  • Hitið ofninn eða pizzaofninn, athugið að ofnar eru mismunandi en gott er að miða við 230°C+
  • Látið hvíla í 10 mínútur í viðbót. Notið strax fyrir eina ofnskúffu, eða skiptið í 4 jafnar kúlur fyrir minni pizzur.

Álegg

  • Dreifið pizzasósu yfir pizzadeigið og raðið álegginu, eftir ykkar höfði (t.d. ostur undir öðru áleggi eða yfir því….eða bæði 🙂 )
  • Setjið pizzuna/pizzurnar inn í ofninn og hitið þar til osturinn er orðinn gylltur eða í um 10-20 mínútur. (Fer eftir ofnagerð)

Til minnis – viðbótarupplýsingar

Val á áleggi er mjög persónubundið en hér er miðað við klassíska skinku, sveppi og ananas.  Pepperóní er dýrara en skinka en sniðugt er að kaupa pakkningu og skipta henni í hluta, frysta skammtana og nýta svo þegar þörf er á.
Staðssetning á ostinum skiptir líka máli en sumir kjósa að setja aðeins undir áleggið, aðrir ofan á áleggið og enn aðrir sem vilja ostinn bæði undir og yfir, endilega prófið ykkur áfram.
Geymsla: 
  • Hægt er að geyma deigið í ísskáp upp undir 3 daga. Áður þarf að leyfa deiginu að lyfta sér til fulls, pakka því svo í plastfilmu og setja í ísskáp.
  • Ef þú vilt frysta deigið, geymist það í tvo mánuði. Áður en deigið er fryst, þarf að leyfa því að lyfta sér til fullst, pakka því í plastfilmu og í fjölnota frystipoka (skiptið í parta áður en þið frystið)
  • Til að afþíða deigið, takið úr frystinum og leyfið að afþíða í kæliskápnum yfir nóttu. Ef þú gleymir því, má taka deigið út og leyfa því að afþíðast við herbergishita í nokkrar klukkustundir.

Fleiri hugmyndir