MEXÍKÓSK KJÚKLINGASÚPA

by birgitta

Mexíkósk kjúklingasúpa

2.289 kr
Undirbúningur 5 mínútur
Eldunartími 40 mínútur
Tegund Kvöldmatur
Þema Mexíkóskt
Skammtar 4 manns

Innihaldslýsing
  

  • 900 g Kjúklingabringur kg
  • 1,5 tsk Salt 1kg
  • 0,5 tsk Pipar
  • 1 tsk Matarolía 1L
  • 1 stk Laukur
  • 4 geirar Hvítlauksgeirar
  • 1 msk Krydd Oregano
  • 2 msk Krydd kóreander
  • 2 dós Tómatar í dós
  • 1 poki Tortillaflögur
  • 1 bollar Nýrnabaunir/gular baunir (valkvætt)
  • 1 dós Sýrður rjómi (valkvætt)
  • 1 tsk Krydd jalapeno (valkvætt)
  • 1 stk Avocado (valkvætt)

Leiðbeiningar
 

  • Þerrið kjúklingabringurnar með pappír
  • Kryddið kjúklingabringur með salti og pipar
  • Hitið olíu á miðlungsháum hita og bætið kjúklingabringunum út í pottinn þegar potturinn er orðinn heitur
  • Eldið bringurnar um 6-7 mínútur á hvorri hlið en þegar þær hafa brúnast vel, færið yfir á disk
  • Lækkið hita niður í miðlungshita og steikið laukinn ásamt einni teskeið af salti, hrærið reglulega þar til hann hefur brúnars.  Bætið þá jalapeno, hvítlauk og oreganó út í pottinn
  • Setjið lok á og leyfið að malla í um 2 mínútur en hrærið þegar mínúta er liðin
  • Hækkið hita aftur upp í miðlungsháan hita og bætið 4 bollum af vatni út á, reynið að ná upp öllu bragðinu af botninum með því að skrapa/hræra vel í botninum
  • Bætið tómötum og kjúklingi út í pottinn og leyfið súpunni að sjóða, þá lækkið þið hitann aftur niður í miðlungshita og eldið í um 8 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn
  • Hrærið kóreander út í pottinn og kryddið með salti og pipar eftir smekk

Fleiri hugmyndir