107
Quesadillas m/hakki
1.142 kr
Innihaldslýsing
- 1 pk Tortillur (8 stk)
- 250 g Folaldahakk kg
- 200 g Góðostur kg
- 1 stk Paprika
- 1 stk Laukur
- 0,5 krukka Taco sósa
Leiðbeiningar
- Hitið pönnu með olíu á meðalhita
- Skerið lauk og papriku í sneiðar eða bita
- Steikið grænmetið á pönnu þar til það hefur mýkst aðeins, setjið til hliðar
- Hitið pönnuna aftur upp á hærri hita með smá olíu
- Steikið hakkið á pönnu þar til það hefur brúnast vel
- Kryddið hakkið með salti og pipar (og öðrum kryddum eftir smekk)
- Setjið til hliðar
- Raðið grænmeti, hakki og osti á annan helminginn á tortillunum og klemmið tortillunni saman í hálfmána
- Steikið á pönnu eða í grilli/samlokugrilli þar til osturinn hefur bráðnað
- Skerið hvern hálmána í 3-4 bita og berið fram með taco sósu
Til minnis – viðbótarupplýsingar
Það má einnig krydda hakkið eftir því hvað fjölskyldunni finnst gott, t.d. hvítlauks-, lauk-, papriku-, fajitas- eða cumin kryddi. Það er líka mjög gott að nota kjúkling eða “pulled pork” í uppskriftina en þá breytist kostnaðurinn aðeins.