SKINKU- & SVEPPA PASTA

by birgitta

Skinku- & sveppa pasta

1.206 kr
Undirbúningur 10 mínútur
Eldunartími 15 mínútur
Heildartími 30 mínútur
Tegund Hádegismatur, Kvöldmatur
Þema Ítalskt
Skammtar 4 manns

Innihaldslýsing
  

  • 500 g Spaghetti 1kg
  • 2 msk Matarolía 1L
  • 1 box Sveppir dós
  • 1 pk Skinka
  • 2 stk Hvítlauksgeirar
  • 1-2 dl Nýmjólk 1L
  • 150 gr Smurostur sveppir 300g
  • Salt og pipar til að bragðbæta

Leiðbeiningar
 

  • Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum
  • Hitið olíu á pönnu á meðalháum hita. Skerið sveppi og skinku niður í bita og steikið
  • Þegar sveppirnir hafa brúnast, bætið þá hvítlauknum saman við og steikið í 2 mínútur
  • Setjið ostinn/smurostinn saman við ásamt mjólkinni og hrærið varlega þar til allt hefur blandast vel saman
  • Saltið og piprið sósuna eftir smekk
  • Að lokum er pastanu blandað saman við og borið fram

Til minnis – viðbótarupplýsingar

Hér má skipta út smurostinum fyrir dýrari rjómaost eða fyrir vegan útgáfu eða ódýrari kosti eins og villisveppaost. Mjólkin er ódýrari en rjómi og því er hún notuð í þessari uppskrift en rétturinn verður saðsamari með rjómanum (og dýrari).
Með því að bjóða upp á lúxus útgáfu með parmesan, hvítlauksbrauð, brauðbollur eða brauðsneiðar, hækkar kostnaðurinn um 3-400 kr.

Fleiri hugmyndir